13.8.2021 | 13:59
Enn fleiri sögur frá Sardeníu
Ég á vinkonu á Sardeníu sem er gift ađeins eldri manni eđa já miklu eldri manni. Hann fékk hjartaáfall og var honum gert ađ létta sig um 10 kg. og lifa sómasamlegu lífi, ekki kaffi, ekki vín og ekki sígarettur. Fyrir ítala af bestu gerđ er ţađ óhugsandi međ öllu ţar sem ţeir lifa fyrir góđan mat, kaffi, vín og sígarettur.
Eiginkonan tók ţađ nú á sig ađ halda í uppskriftir frá lćkninum sem töldu 450 gr. af léttu fuglakjöti í viku hámark og hélt hún ţađ nú ekki vera vandamál. Hófst hún handa viđ ađ útbúa mat fyrir vikuna og var samviskusöm međ alla rétti, fiskur 3svar í viku, grćnmeti og svo fuglakjöt. Skipti út ís fyrir veganís og gerđi allskonar breytingar.
Eitthvađ hafđi hún misskiliđ grömmin og gaf manni sínum 450 grömm af kjöti í hvert mál og ţegar hann kom eftir 4 vikur til lćknis aftur hafđi hann bćtt á sig 6 kg. viđ mjög litla hrifningu lćknisins. Hann sagđist nú halda ađ hann hafi fylgt öllum hans fyrirmćlum í hvívetna og leit á konu sína til ađ fá hennar samţykki. Hún sagđi ţá ég kaupi 1 kg. af kjúkling á mánudögum og skipti honum í tvennt og hann fćr hálfan og aftur síđan hinn helminginn síđar i vikunni. 100 gr. sem eftir eru gef ég hundinum sagđi hún hróđug. Lćknirinn sagđi henni ađ hámark 450 gr. á viku hefđi veriđ hans fyrirskipun. Mađurinn hennar á erfitt međ andardrátt og getur ekki hneppt skyrtunni sinni en treystir frúnni í blindni ađ redda ţessu. Hann heldur sig ţó viđ bjór zero (alkóhólfrían) og koffínlaust kaffi enda hún međ ţetta allt á hreinu eiginkonan.
Elska ţessar sardenísku konur.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.