27.9.2011 | 12:01
Húsmóðursblinda!!
Ég ætla ekkert að ljúga því að ég sé þessi "ofurhúsmóðir" mundi frekar segja þvert á móti, verð seint kosin "húsmóðir ársins" enda stendur hugur minn ekki til þess. Það eru svo marigir aðrir í kringum mig sem eiga tilkall til þess titils.
Ég hef klúðrað þvotti með þeim hætti að eitt sumarið gekk öll fjölskyldan í ljósbleikum fötum (hvað er með þessa sokka sem virðast komast óséðir inní vasa á hvítum fötum til þess eins að valda skaða?)
Eiginmaðurinn fyrrverandi hafði nú svo mikla trú á húsmóðurhæfileikum mínum að hann spurði hvort hann hefði stækkað, þegar hann stóð í ljósbleiku gallabuxunum sínum (áður hvítu) og skálmarnar náðu rétt niður fyrir hné eftir 100° suðu. Já ég er ekki frá því, sagði ég, því ég vildi nú ekki spilla fyrir trúnni hans á mér. Þegar ég sauð hins vegar lopapeysuna sem tengdó hafði prjónað, þá held ég að hann hafi verið farið að gruna að hann væri nú hættur að stækka svona rosalega.
Ég hef bakað þá ljótustu köku sem ég hef séð, en vinkonur mínar í saumaklúbbnum þótti hún góð, en þó var mikill afgangur. (??) Systur mínar koma mér þó til hjálpar ef ég þarf að halda veislur og jafnvel eins þegar samstarfsfólk mitt hefur þurft að halda veislur, en ég er svo almennileg og býð oftar en ekki fram hjálp mína.
Þær bjóðast þá til að hjálpa mér og enda oftast á að segja: "heyrðu ég skelli bara í franska súkkulaðiköku" fyrir þig. Mér finnst þetta svo flottur frasi, en hef aldrei getað notað hann sjálf, því ég skelli ekki í köku bara si sona. Kaka er stórmál!
Ég er þó ekki versta tilfellið sem ég veit um, því ég á vinkonu sem ætlaði að halda stórveislu fyrir manninn sinn á einhverjum tímamótum og leitaði til mín ( já orðspor flýgur nú hreint ekki það hratt)
Nánast ómótt yfir traustinu sem mér var sýnt og stolt fyrir allan peninginn sagði ég henni bara að "HENDA" í kötbollurnar mína frægu (óskhyggja, ég átti ekkert í þeim og þær voru ekki svo frægar).
Í kjötbollurnar þurfti: Saltkex, nautahakk og lauksúpu= hrært saman og mótaðar bollur
Í sósuna þrufti: sólberjasultu og Chilisósu = hitað og hrært saman
Ég útskýrði af miklum eldmóði, hvernig ætti að bera sig að, vinkonan skrifaði og skrifaði, en þar sem ég á það til að vera örlítið æst, og hef væntanlega ekki alveg raðað setningunum rétt saman, hugsanlega vantað inn orð og orð, enda ætlast ég stundum til að fólk lesi milli línanna það sem uppá vantar.
Eitthvað hafði nú uppskriftin "MÍN" skolast til, því vinkonan sagði svo frá á mánudeginum:"jú jú þetta tókst nú ágætlega, nema bollurnar hrundu alltaf í sundur" ég bað hana þá að lýsa bollugerðinni:
"Ég steikti hakkið, eldaði súpuna og svo þegar ég ætlaði að fara að bæta Ritskexinu útí, þá vildu þær ekki haldast saman bollurnar" en ég fann ráð við því sagði hún alveg stolt með titrandi röddu, "ég barði bara kexið inní bollurnar undir rennandi vatni og þá héldust þær saman, ég er reyndar alveg marin í lófunum, því það var svo erfitt að móta þær með kexinu í. Svo þegar fólk stakk kokteilpinnum i bollurnar þá hrundu þær allar aftur í hakk og kex. En mér tókst vel upp með sósurnar" sagði hún stolt.
Sósur? spurði ég, það átti bara að vera ein sósa, nei ég gerði tvær, sæta sósan =sólberjasultan og súra sósan = chilisósan. Þar sem hún var svo stolt yfir þessu, enda hennar fyrsta veisla þá sagði ég ekkert, en hún mun ekki sjá um mínar veislur í framtíðinni.
Athugasemdir
þú ert bara fyndin
Hilma Ösp Baldursdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 12:15
Við munum þræða restaurantin hægri vinstri, ekkert eldhúsklúður!
www.zordis.com, 27.9.2011 kl. 12:15
Takk Hilma mín, við höfum nú heldur betur rúllað upp veislum í gegnum tíðina ekki satt.. og Þórdís að sjálfsögðu munum við ekki borða eigin framleiðslu. Alla vega ekki á Taorminu!!!
Guðlaug Björk Baldursdóttir, 27.9.2011 kl. 12:20
Ef einhver okkar er verri en þú þá er það ég. Enda þið systurnar bjargað mínum stórveislum hingað til.
Úje.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2011 kl. 15:31
Já og ég hló addna skaðræðið þitt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2011 kl. 15:32
mér finnst þetta líka fyndið
Sigrún Óskars, 27.9.2011 kl. 19:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.